Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur var stofnaður á fæðingardegi hennar 3. október 2010 en þá hefði Margrét orðið 55 ára. Að undirbúningi stofnunar sjóðsins stóðu fulltrúar lækna og hjúkrunarfræðinga sem annast skurðmeðferð brjóstakrabbameins, fulltrúar Bætum ein-stök brjóst og ættingjar Margrétar. Sjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar við brjóstakrabbameini á Landspítala. Skipulagsskrá (pdf) 

Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein hafa batnað mikið á síðustu áratugum. Vegna þess hve lífslíkur eru góðar er vaxandi áhersla lögð á lífsgæði krabbeinsgreindra kvenna, m.a. með endursköpunaraðgerðum. Skurðmeðferð hefur því orðið umfangsmeiri þar sem oft fer saman aðgerð til lækningar á krabbameini og aðgerð til þess að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin veldur. Ör þróun innan þessa sviðs kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og þá sem annast meðferðina.

Hlutverk minningarsjóðsins er að styrkja þessa starfsemi, m.a. með því að

Fjáröflun sjóðsins felst m.a. í sölu bæði minningar- og afmæliskorta sem hægt er að nálgast hér á vefnum.  Eftir að skráningarformið hefur verið fyllt út er greitt fyrir með greiðslukorti. Einnig er hægt að fá kortin á Ísafirði hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, bókaverslun Eymundsson og Birki ehf. en auk þess hjá foreldrum Margrétar, þeim Oddi og Magdalenu, að Seljalandsvegi 38 á Ísafirði.

  Kennitala sjóðsins er 700410-1610 og reikningsnúmer 0130-15-381828.